26.12.2007 17:51

Afmælisannar í jólum



Jólin eru búin að vera nokkuð fín, ég vona að þið hafið öll getað notið þeirra. Reyndar eru alltof margir búnir að eyða tíma sínum í að hringja í 8007000 frekar en að gera eitthvað sniðugra, eins og t.d. að njóta þess að vera í jólafríi. Skil ekki hvað er að svoleiðis fólki...

Núna er hins vegar kominn annar í jólum og það er mjög merkilegur dagur. Það var sem sagt á þessum degi fyrir heilum 3 árum síðan sem Silja samþykkti að verða kærastan mín. Hiklaust einn af þeim dögum sem eru í uppáhaldi hjá mér. Ótrúlegt hvað það virðist stutt síðan en samt hefur svo rosalega mikið gerst á þessum tíma. Til dæmis er hún ekki lengur kærastan mín núna heldur unnusta, það er algjör snilld. Svo erum við ekki lengur 2 heldur 3, önnur snilld.

Ég hef verið hamingjusamari þessi 3 ár en öll 22 árin á undan og það er Silju að þakka.

Ég elska þig Silja.

Þessi flotta mynd er einmitt tekin á gamlárskvöld eftir að við byrjuðum saman. Þarna erum við að skoða mjög svo skemmtilega áramótakveðju frá Hildi. Góðir tímar.

Kveðja,
Dóri
Flettingar í dag: 1344
Gestir í dag: 91
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 90378
Samtals gestir: 17901
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 11:15:29