Halldór Marteinsson, símsvari
    <language>is</language>
    <generator>www.123.is</generator>
Topp 5 gæsahúð
      <description>Var að setja inn einn Topp 5 lista. Þessi heitir Topp 5 gæsahúð og er frekar massífur. Kíkið á hann hérna.</description>
Tom Waits í hip hop gírnum
      <description>Ég veit ekki með ykkur en mér finnst þetta lag hellasvalt. Búinn að hlusta á það svona 10 sinnum í dag.Svo eru líka komnar inn nýjar og fínar myndir af Frosta á síðuna hans.</description>
Röyksopp og Robyn
      <description>Getur varla klikkað. Þetta lag á væntanlega eftir að heyrast eitthvað á næstunni.          </description>
2 legends
Vefverslun Halldórs
      <description>Bætti við nýrri síðu, Vefverslun Halldórs. Endilega skoðið hvað þar er í boði. Eitthvað fyrir alla!Kveðja,Halldór Marteinsson stórkaupmaður</description>
Fjör í bloggheimum
      <description>Sælt veri fólkið,ætli einhver kíki ennþá hingað inn? Allavega er ég búinn að skella inn Twitternum mínum hér til hliðar og stefni á að setja eitthvað meira hérna inn. Twitter er snilld, aðallega út af snillingum eins og þessum, þessum og þessum.Átti annars góða helgi, fórum í sveitina og svona. Var í fríi í 5 daga sem er aldrei leiðinlegt.Öfunda líka Önnu litlu systur mína, frétti af henni að borða grillaðan hádegismat í 20 stiga hita. Hér rétt slefar hann yfir frostmark á góðum degi og alltaf eitthvað sem kemur í veg fyrir grillaðan hádegismat.</description>
Topp 5
      <description>Topp 5 listar eru hressir. Ég er líka byrjaður að henda inn mínum topp 5 listum á síðuna toppfimmafostudegi.blogspot.com - endilega kíkið á það. Minn fyrsti listi er hér.</description>
Jólajóla
Tvífarar vikunnar
      <description>Lars úr Lars and the Real GirlAtli BollasonMæli annars með Lars and the Real Girl, frekar spes en skemmtileg mynd. </description>
Jóla
      <description>Styttist í jólin, ég fór við það tækifæri að rifja upp gamla jólabloggtakta. Rakst á þessa færslu síðan í fyrra  http://www.123.is/halldor/blog/record/173611/    og svo auðvitað þessa, good times  http://www.123.is/halldor/blog/record/181922/    verst að það vantar allar myndirnar sem ég notaði til að skrásetja þennan stórkostlega viðburð.    Ég vona að jólin verði góð hjá öllum þetta árið. Mér finnst einhvern veginn eins og jólastemningin núna sé melankólískari (gott orð, ég veit) en áður útaf kreppunni og óvissunni sem núna ríkir. Kannski er það bara ég.    Þá er bara um að gera að leita á náðir fjölskyldu og góðra vina, hlusta á góða jólatónlist, borða góðan jólamat og njóta þess að vera til.    Hér er yndislegt jólalag. Travis fer vel með þetta Joni Mitchell lag, River heitir það.    </description>
Gondry
      <description>Spilar á trommur</description>
Jólagírinn
      <description>Ég veit ekki með ykkur en ég er að komast í ágætis jólagír</description>
Snilld
      <description>Þetta myndband er nokkuð fönký og lagið undarlega skemmtilegt.      Þetta líka:    </description>
Tom Waits
      <description>Já, alveg rétt... ég sá Tom Waits í sumar. Það var snargeðveikt. Dublin er líka ótrúlega nett borg, mæli með henni.  Svona byrjuðu tónleikarnir:      Lag sem skildi mig eftir dofinn af gæsahúð og með tár í augum var samt þetta lag, Dirt in the Ground:       Goddammit hvað mig langar aftur á Waits tónleika.  Annars er það í fréttum að mig langar ekkert sérlega mikið að búa á þessu skeri lengur. Við Silja erum að íhuga það alvarlega að flytja þegar færi gefst (sennilega eftir ár til eitt og hálft). Valið stendur eins og er á milli Svíþjóðar og Kanada.  Kveðja, Dóri </description>
What, me worry?
Hvad getur madur sagt?
      <description>Setlistinn a tonleikunum:Lucinda / Ain't Goin' Down to the WellRaindogsFalling DownOn the Other Side of the WorldI'll Shoot the MoonCemetery PolkaGet Behind the MuleCold Cold GroundSingaporeCircus / Tabletop JoeGod's Away on BusinessTom Traubert's BluesOn the NickelChristmas Card From a Hooker in MinnneapolisInnocent When You DreamLie to MeHoist that RagBottom of the WorldGreen GrassWay Down in the HoleMetropolitan GlideDirt in the GroundMake it Rain-Jesus Gonna Be HereEyeball KidTime- - - - - - - - - - - - - - - - - - 2 timar og 45 minutur, engin pasa nema thegar hann var klappadur upp. Kallinn stjornadi baedi hljomsveit og ahorfendum eins og herforingi og bandid var storkostlegt. Sirkustjaldid og rigning skopudu fullkomid andrumsloft fyrir thad sem eg verd ad segja ad gaetu ekki hafa verid betri TW jomfruartonleikar minir. Eg var i gaesahudartransi allan timann og er ekki enn buinn ad jafna mig.Maeli med thvi ad allir sem geti fari a Tom Waits tonleka thvi thad er an efa mannbaetandi upplifun. Eg vona bara ad hann se ekki haettur thvi mig langar aftur (og aftur og aftur og aftur og aftur).</description>
Event Reminder
      <description>Þegar ég opnaði gmailinn minn á fimmtudag blasti við mér fyrirsögnin:Event Reminder: Tom WaitsPóstur frá Ticketmaster. Ég gat ekki annað en glott dáldið, eins og það þurfi að minna mig á þetta.Annars alveg fáránlega stutt í þetta, ekki á morgun heldur hinn förum við út og á miðvikudagskvöldið sjáum við Tom Waits.Svo þurfum við að finna okkur eitthvað að gera fram á mánudag þegar við komum heim aftur. Lúxusvandamál.</description>
Smá mont
      <description>Kom í póstinum í gær. Hér má annars sjá fróðlegar upplýsingar um túrinn til þessa. Til dæmis:- Tom Waits hefur spilað 63 lög á þeim 13 tónleikum sem búnir eru- einu lögin sem hann hefur spilað á öllum tónleikunum eru opnunarlagið Lucinda/Ain't going down to the well og Way Down in the Hole- á hverjum einustu tónleikum hefur hann flutt a.m.k. eitt lag sem hann hefur ekki tekið áður á túrnum- þessi 63 lög koma af 16 mismunandi plötum og skiptast þannig:        Orphans: 5        Real Gone: 8Alice: 2Blood Money: 5Mule Variations: 9Black Rider: 2Bone Machine: 7Big Time: 1Frank's Wild Years: 3       Rain Dogs: 9Swordfishtrombones: 4Heartattack and Vine: 2       Blue Valentine: 1Small change: 3      Night On Earth: 1       Healing The Divide: 1</description>
For I am a raindog too
      <description>Ég trúi því ennþá ekki almennilega að ég sé að fara á Tom Waits tónleika í enda þessa mánaðar. Spenntur? Það er understatement of the year.Sérstaklega þegar ég er búinn að liggja slefandi yfir setlistum af tónleikunum hjá honum og sjá að hann er að taka 20-25 lög á hverjum tónleikum.Hver hefði til dæmis eitthvað á móti svona tónleikum?- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - Lucinda/Ain't Goin Down to the WellWay Down in the HoleFalling DownAll the World is GreenChocolate JesusCemetery PolkaSins of My Father16 Shells from a Thirty-Ought SixTrampled RoseCold Cold GroundNovemberBlack Market BabyHoist That RagLucky DayInnocent When You DreamLost in the HarbourLie to MeMisery is the River of the WorldBig in JapanDirt in the GroundMake it RainJesus Gonna Be HereEyeball KidHouse Where Nobody LivesTime- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -Tónleikar haldnir þann 28. júní í Ohio Theatre, Columbus.Ekki hefur spennan svo minnkað eftir að myndbönd af tónleikum fóru að detta inn á youtube. Ég hugsa að eftir 2-3 vikur verði ekki hægt að ná miklu sambandi við mig. Eigum við að ræða þetta eitthvað frekar?      Þetta er af tónleikum 26. júní. Annars hefjast tónleikarnir hans yfirleitt einhvern veginn svona:    Einhver sem toppar þetta? Hélt ekki. Svo fáum við líka svona stemningu frá honum:     10 ár síðan ég byrjaði að hlusta á kappann og loksins loksins fæ ég að sjá hann á tónleikum. Hallelúja!!</description>
Sönn íslensk hetja
      <description>Benedikt Lafleur reynir við Ermasund á ný                      Sundkappinn Benedikt S. Lafleur,  reynir í nótt við sund yfir Ermasund í nótt en hann hygst leggja af  stað frá Shakespeare strönd Englandsmegin klukkan 3:00. Þetta er önnur  tilraun Benedikts og í þriðja skipti sem hann heldur til Dover til að  reyna við Ermarsundið, en í fyrsta skiptið fékk hann ekki að spreyta  sig vegna slæms veðurs. Mun Benedikt synda í átt að Calais í Frakklandi  á morgun.Segir í tilkynningu frá Benedikt að  veðurhorfur séu prýðilegar næstu tvo daga og af þeim sökum halda  sundmenn og áhöfn bjartsýnir í förina. Lagt verður af stað í myrkri en  vonandi kemst sundmaður á áfangastað í birtu. Áætlaður tími er allt frá  16 klst. upp í einn sólarhring.mbl.isKappinn! Ætlar að reyna aftur. Gott hjá honum, þýðir ekki að gefast upp.Þess má annars til gamans geta að leikkonan Doon Mackichan, helst þekkt úr þáttunum Smack the Pony, synti yfir Ermasundið 1998.Kíkið einnig á einstaklega skemmtilega og glæsilega heimasíðu Benedikts um sundafrek sín. Slóðin er  www.ermasund.is Þar er m.a. þessi stórkostlegi brandari:                          Aðaláhyggjuefni Benedikts í Ermasundinu er að hann á erfitt með að míga í sjónum án þess að botna neins staðar á leiðinni!        Benedikt  S. Lafleur sjósundkappi spyr Guð: Hverning get ég migið í sjónum yfir  Ermasundið ef ég get ekki botnað neins staðar á leiðinni. Og Guð  svarar: Þú stendur bara á einum hvalnum!       Hvernig stendur á því að þessi maður hefur ekki fengið Fálkaorðuna ennþá?</description>
Töffness
      <description>Sumt fólk er bara töff, þarf ekkert að ræða það neitt frekar. Beck er t.d. töff. Þetta atriðið er megatöff.     Tom Waits er líka megatöff. Ég er að fara að sjá hann í Dublin ef það hefur farið framhjá einhverjum. Ekki lítið spenntur. Hverjum finnst þetta t.d. ekki töff?     Þessi gaur hins vegar, hann langar rosalega mikið til að vera töff. Hann er það hins vegar ekki að mínu mati. Nokkrir hlutir spila þar inní, hann er of mikið að reyna að vera Tom Waits og það gengur bara alls ekki upp (eitt að verða fyrir áhrifum, annað að copy/paste-a lög, texta og stíl), myndbandið er yfirmáta slappt og svo er maðurinn náttúrulega frá Færeyjum þannig að það er kannski ekki við miklu að búast.    Skemmtilegt samt að lögin 3 hér fyrir ofan heita öll Clap Hands.Næsta lag heitir það hins vegar ekki. Það er hins vegar með afskaplega töff náunga sem þar að auki er írskur, ekki leiðinleg blanda. Ég er að tala um Damien Rice. Við Silja erum mökksvekkt að hafa ekki náð að redda okkur miðum á tónleikana með honum. Ef einhver vill vera súperdúperextragóður við okkur má viðkomandi gefa okkur miða á tónleikana með honum. Það væri vel þegið.Lagið sem ég ætla að skella inn með honum er snilldin Cheers Darlin' og kemur inn í 2 hlutum. Fyrri hlutinn er sagan á undan laginu, mæli sérlega mikið með þeirri sögu, seinni hlutinn er svo lagið sjálft, mæli einnig sérlega mikið með laginu.        Cheers</description>
og oftar en tvisvar
      <description>Þessi maður verður í Phoenix Park, Dublin 30. júlí n.k. Þar verð ég líka.</description>
Sumt þarf að segja oftar en einu sinni
      <description>30. júlí verð ég í Dublin að sjá þennan mann á tónleikum  </description>
Hvað ætlar þú að gera 30. júlí nk.?
      <description>Ég verð allavega í Dublin að sjá þennan mann á tónleikum...     </description>
YESSSSS!!!!
      <description>Djöfull sem einn maður getur verið svalur    Hægt að sjá meira á www.tomwaits.comAnnars er slúðrið á götunni að auk þess að hann sé að fara að túra USA og Evrópu sé kallinn að fara að gefa út nýja plötu í sumar... það væri sannarlega snilld.</description>
Back to the future
      <description>Sælt veri fólkið.Við erum flutt í Kópavoginn, Ásbraut 3. Ekkert nema gott um það að segja. Er búinn að mála fullt og skrúfa saman fáránlega mikið af Ikeavörum. Lítur vel út. Endilega kíkið í heimsókn.Við Silja kíktum á Back to the Future I og II um daginn. Klassamyndir.Crispin Glover hlýtur samt að teljast einhver sérstakasti listamaðurinn á svæðinu. Tékkið á þessu skemmtilega myndbroti t.d.     Og hér er eitt skemmtilegt lag með Tom Wilson, gaurnum sem lék Biff í BttF myndunum.    </description>
O, the joy!
      <description>True datAnnars er þessi líka góður:</description>
Bilaði heimur
      <description>   Þeir sem hafa séð Donnie Darko kannast við lagið hér að ofan. Gary Jules að syngja gamla Tears for Fears lagið Mad World. Frekar fallegt lag. Upprunalega myndbandið (og lagið) með Tears er hins vegar tær snilld. Mæli sérstaklega með manninum sem sést út um gluggann dansa sem enginn væri morgundagurinn.    Annars er ekki mikið að frétta, bara vinnavinnavinna yfir páskana. Gríðarlega hressandi. Svo styttist alltaf í Londonferðina okkar, ætlum út í lok júlí. Lendum í London og daginn eftir förum við í lestarferð til 20 þúsund manna smábæjar sem heitir Buxton. Af hverju, spyrjið þið kannski. Jú, til að sjá Jimmy Carr. Ekki hægt að segja annað en ég sé fáránlega spenntur fyrir því.Annað sem ég er spenntur fyrir er músík. Mig langar rosalega til að byrja að gera eitthvað í músík. Er alltaf að reyna að fá Silju með mér í hin og þessi verkefni og við stefnum á að gera eitthvað saman. Er alltaf að gutla eitthvað á gítarinn og finnst það ótrúlega gaman. Bara verst hvað ég kann lítið. En það á ekki að stoppa mann frá því að halda áfram, bara taka pönkviðhorfið á þetta...</description>
Kaltkaltkaltkaltkaltkaltkaltkaltkaltkaltkaltkaltkalt!!!!
      <description>Þetta er ég síðustu vikurnar. Það er á svona dögum sem ég velti því fyrir mér hvers vegna við þrjóskumst til að byggja þetta klakasker. Það átti víst að hlýna í gær eða fyrradag en ég komst að því að þar var farið frjálslega með hugtakið að hlýna (allavega að mínu mati) og hið rétta var að frostið átti aðeins að minnka. Ég man ekki hvað er langt síðan ég fór síðast í (napurkaldan) bílinn minn og sá hitatölu sem ekki kom á eftir mínusmerki. Þvílíkt fjör!En þá verður maður bara að finna sér eitthvað til að hugsa hlýlega til/um. Frosti átti afmæli í gær og hélt heljarinnar afmælisbollukaffi á sunnudaginn. Hægt að sjá mikið af flottum myndum á síðunni hans. Það var gaman að hitta allt fólkið.Skv. mbl.is var 0°C klukkan 18. Það er aldeilis. Hins vegar var þá 11°C í London. London er skemmtileg borg.Samt er um að gera að hafa gaman og þá sérstaklega þegar veðrið er ömurlegt. Black Books hentar vel undir þeim kringumstæðum. Fátt sem toppar vel skrifaðar breskar gamanþáttaseríur þegar kemur að því að létta skapið í myrkrinu.Hér er smá brot af snilldinni.        </description>
Whitesnake
      <description>Jæja, það kostar víst 7900 krónur í stúku á Whitesnake. Bara útsöluverð. Enda skiljanlegt þegar maður lítur á snilld eins og þessa.     eða þessa     Hvað segiði annars? Eitthvað að frétta?Ég er orðin teiknimyndakarakter, ekki amalegt. Myndi segja að ég væri eins og sambland af Batman og Silent Bob. Eða ekki. Sjáið sjálf HÉR.</description>
You Crazy Beaver!
      <description>Wulffmorgenthaler er fyndið stöff. Mæli með því, sérstaklega þessum beaver karakter, hann er æði.Annar karakter sem er algjör snilld er Dennis Moore. Hann er úr 11. þætti 3. seríu Monty Python's Flying Circus.    Vantar reyndar lokin á atriðinu en samt fáránlega fyndið. Mæli með restinni af þessu atriði.Ég var samt að googla Dennis Moore og datt þá niður á þennan hressa kall:Þetta er sem sagt Dennis Moore, þingmaður fyrir Kansasríki í Bandaríkjunum. Smellið á myndina til að komast á síðuna hans. Merkilegt, merkilegt.</description>
Fyrsta færsla ársins
      <description>Jæja, bara komið nýtt ár. Og þessi sæta stelpa á afmæli í dag, til hamingju Silja!Ég var að fara yfir myndirnar af henni á myspace til að finna mynd til að setja með þessari færslu og þær eru nokkrar fáránlega flottar. Er að hugsa um að hafa textann ekki mikið lengri en setja þess í stað inn nokkrar myndir í viðbót af afmælisbarninu til að monta mig aðeins af því hvað ég á fáránlega sæta kærustu sem myndast velAfmæliskveðja,Dóri heppni</description>
Síðasta færsla ársins
Afmælisannar í jólum
      <description>Jólin eru búin að vera nokkuð fín, ég vona að þið hafið öll getað notið þeirra. Reyndar eru alltof margir búnir að eyða tíma sínum í að hringja í 8007000 frekar en að gera eitthvað sniðugra, eins og t.d. að njóta þess að vera í jólafríi. Skil ekki hvað er að svoleiðis fólki...Núna er hins vegar kominn annar í jólum og það er mjög merkilegur dagur. Það var sem sagt á þessum degi fyrir heilum 3 árum síðan sem Silja samþykkti að verða kærastan mín. Hiklaust einn af þeim dögum sem eru í uppáhaldi hjá mér. Ótrúlegt hvað það virðist stutt síðan en samt hefur svo rosalega mikið gerst á þessum tíma. Til dæmis er hún ekki lengur kærastan mín núna heldur unnusta, það er algjör snilld. Svo erum við ekki lengur 2 heldur 3, önnur snilld.Ég hef verið hamingjusamari þessi 3 ár en öll 22 árin á undan og það er Silju að þakka.Ég elska þig Silja.Þessi flotta mynd er einmitt tekin á gamlárskvöld eftir að við byrjuðum saman. Þarna erum við að skoða mjög svo skemmtilega áramótakveðju frá Hildi. Góðir tímar.Kveðja,Dóri</description>
Jólin
      <description>Þar sem 24. desember er kominn langar mig til að óska ykkur öllum gleðilegra jóla.Það virtist vera sem Silent Night hér fyrir neðan hafi ekki skilað sér að fullu en ég er búinn að bæta úr því. Nú færðu allt lagið með því að smella á Tom Waits myndina hér fyrir neðan. Getur líka valið Skrár hér til hliðar og þar er lagið líka auk annarra góðra jólalaga.</description>
Jólastuð
      <description>Veit ekki hvað það er en mér finnst þessi mynd afskaplega jólaleg. Dáldið eins og jólakveðja frá mr. Waits eða poster fyrir svart/hvíta jólamynd.Annars er ég kominn í frekar hressilegt jólastuð.Það má  segja eitt jákvætt um myndina Santa Clause með Tim Allen,  í myndinni var að finna þetta lag með hinum fáránlega hæfileikaríka Michael Bublé. Ég var að uppgötva gríðarlega skemmtilega þætti. Það eru þættir sem heita QI og koma úr smiðju snillingsins Stephen Fry. Það er hægt að nálgast þættina bæði á alluc og youtube. Mæli með að allir kíki á þá.Og þar sem nú er komin Þorláksmessa er kominn tími á jólalag allra jólalaga, Silent Night, í flutningi meistara Tom Waits. Smellið á myndina hér að ofan til að njóta og uppfyllist jólaanda og hátíðarskapi. Ef þetta virkar ekki þá mæli ég með að jólunum ykkar verði frestað í ár.Jólakveðja,Dóri</description>
Af grínistum
      <description>Meira um Tim Vine. Hann er svona eins og afmælispartýtrúðsútgáfan af Steven Wright. Sannarlega ekki jafnfyndinn og Wright. Persónulega finnst mér hann fyndnari í þáttunum en uppistandinu en hann á sín móment.Talandi um útgáfur af Steven Wright, hér eru fleiri útgáfur af honum.Jimmy Carr er Posh útgáfan af Steven WrightMitch Hedberg er hasshausaútgáfan af Steven Wright Demetri Martin er leikskólaútgáfan af Steven WrightLarry the Cable Guy er ekki fyndinn!!!</description>
London saga
      <description>Jæja, það er bara komin pressa á mig að halda áfram að blogga. Þýðir ekkert annað en að standa undir þeirri pressu.Við Silja fórum til London í lok maí á þessu ári. Það var mögnuð ferð, fórum á frábæra tónleika og fengum okkur sitt hvort tattooið í Camden auk þess að skoða okkur um og versla. Við féllum alveg fyrir London og stefnan er að fara þangað aftur við fyrsta tækifæri, hvenær sem það svo verður.Neðanjarðalestakerfið var mikið notað í þessari ferð, enda jafnast leigubílaferð í London á við svakalegastu rússíbanareið á góðum degi. Í eitt skipti þegar við tókum lest, sjálfsagt til að komast á Oxford Street, tók ég eftir mjög kunnulegu andliti. Ég var alveg pottþéttur á að ég kannaðist við mann sem stóð rétt hjá okkur. Ég benti Silju á hann og hún var ekki frá því að hún kannaðist líka við hann. Ég tengdi hann strax við leikara í breskum sketsaþætti þótt ég gæti ómögulega munað hvað hann héti eða í hvaða þætti hann hafði leikið. Af einhverjum ástæðum datt mér helst í hug snilldarþættirnir The Big Train en var þó ekki viss um það. Var samt algjörlega viss um að þennan mann hafði ég séð í sjónvarpi.Við tók ansi langur og pirrandi tími þar sem ég reyndi að muna hver í fjandanum þetta væri. Ég staðfesti það að hann hafði ekki komið nálægt The Big Train  og það var sama hvaða bresku grínþáttum ég fletti upp, ég fann ekki manninn. Fátt er jafn pirrandi og að geta ekki munað eitthvað sem maður á að muna, eða telur sig eiga að muna.Svo kom rólegur dagur í vinnunni nokkrum mánuðum seinna og ég fór að skoða youtube. Ég er mjög hrifinn af góðu uppistandi og komst í feitt þar sem ég fann þátt þar sem fjallað var um 100 bestu uppistandarana að mati Channel 4. Ég byrjaði að horfa á niðurtalninguna og fyrsti maðurinn sem ég sé þar er náunginn úr neðanjarðarlestinni, Tim Vine. Það var ekki að furða að ég tengdi hann við sketsaþátt því hann lék í snilldarþáttunum The Sketch Show. Hann átti einnig eitt sinn met í að segja flesta brandara á einum klukkutíma (þar sem brandarinn þurfti að fá hlátur frá áhorfendum til að telja) eða 499 brandara.Ekki amalegt!Ég veit ekki með ykkur en mér finnst hann frekar fyndinn.         </description>
Jóladrykkurinn 2007
      <description>Appelsínubreezer og maltbjór, fæst í ríkinuJæja, þá er komið að umfjöllun um jóladrykkinn 2007. Eins og allir dyggir lesendur þessa bloggs vita er jóladrykkurinn í ár appelsínubreezer og maltbjór.Allt tilbúið fyrir blönduninaMeð jólaspenning í maga fór ég í vínbúð og keypti mér það sem til þurfti í drykkinn. Ég lét veðurofsann lítið á mig fá, í mínum huga var jólasnjókoma og ekki frá því að ég fynndi lykt af jólamat. Eins og barn sem fær stærsta jólapakkann hélt ég svo heim á leið með góssið.Eftir tilætlaða kælingu hófst blöndunin sjálf. Ég var búinn að ákveða að blanda þetta ca. eins og venjulega jólablöndu nema sleppa kókinu þar sem það er ekki áfengt. Það þýðir að blöndunin var 2:1, appelsínubreezer í vil.Appelsínubreezerinn kominn í glasiðÞá var komið að því að setja maltbjórinn út í. Með mikilli einbeitingu og skurðlæknanákvæmni var honum blandað við appelsínubreezerinn.Einbeitingin var rosaleg enda vandasamt verkDrykkurinn var tilbúinn. Við fyrstu sýn var allt í góðu lagi. Liturinn minnti óneitanlega á gamla góða jólaölið nema þó heldur rauðara og ljósara ef eitthvað er.Svona lítur jóladrykkurinn 2007 útLyktin var verulega frábrugðin lyktinni sem við eigum að venjast af hinu klassíska jólaöli. Í raun var fátt sameiginlegt með lyktinni af henni og lyktinni af jóladrykknum 2007. Eiginlega var ekki hægt að finna neina maltlykt en í staðinn mjög ávaxtakennda appelsínulykt (þá meina ég blandaða ávexti, geri mér fulla grein fyrir því að appelsína er líka ávöxtur). Þarna komu fram mínar fyrstu efasemdir um ágæti drykksins en þó var haldið áfram af fullum hressleika.Skál fyrir jólunum!Bragðið var... ég veit eiginlega ekki alveg hvernig ég á að lýsa bragðinu. Kannski var blönduninni um að kenna en ég fann lítið maltbragð. Í staðinn var mjög yfirþyrmandi gerviávaxtabragð með frekar skrýtnu eftirbragði. Eftirbragðið minnti mig á bragð sem fylgdi bjór sem pabbi minn bruggaði einu sinni í bílskúrnum. Sá bjór var vel drekkanlegur ef hann var kældur svo nálgaðist frostmark. Jóladrykkurinn 2007 er alveg drekkanlegur en ég mæli með smá tíma til að venjast eftirbragðinu.Hann var ekki lengi að hverfaEftir nokkra sopa var ég farinn að venjast bragðinu og þá reyndist þetta hinn ágætasti drykkur þótt hann væri töluvert frábrugðinn hinu hefðbundna jólaöli. Áhrifin voru nokkuð fljót að segja til sín, enda bæði bjór og romm í drykknum. Það var þó ekki hægt að finna neitt áfengisbragð.Allt búið, duglegur strákurNiðurstaðan er sú að drykkurinn olli nokkrum vonbrigðum. Þar gætu væntingar mínar hafa spilað góða rullu þar sem þær voru töluverðar fyrir smökkun. Það er þó viss jólastemning sem fylgir þessum drykk og hver veit nema hann fylgi mér næstu jól. Ég mæli samt ekki með því að klassíska jólaölinu sé skipt út fyrir þennan drykk því ég get ekki ímyndað mér að hann fari vel með mat. Einnig er rétt að taka fram að ekki er ráðlagt að blanda saman áfengistegundum á djamminu og ég er ekki frá því að þess gæti núna. Mér finnst áhrifa gæta enn þrátt fyrir að ég hafi bara blandað mér þennan eina drykk í gærkvöldi. Það gæti þó verið af öðrum völdum, svosem þeim að ég sofnaði seint og vaknaði frekar snemma.Ég frétti það einnig að hann hafi mælst vel í partýi sem haldið var í gærkvöldi sem gæti þýtt það að drykkurinn sé betri ef búið er að hita upp með öðrum áfengum drykkjum áður en þessi er smakkaður.Þessi drykkur fær af fimm mögulegum, aðallega fyrir flippaða jólastemningu og hressandi áhrif.Gleðileg jól 2007Það væri svo gaman að heyra frá öllum þeim sem leggja í þennan drykk (og hinum líka), endilega komið með ykkar skoðun á jóladrykknum 2007.Kveðja,Dóri blandari</description>
Meira jólastuð
      <description>Hvað segiði, einhver búin/n að smakka jóladrykkinn minn? Eru kannski allir að bíða eftir að ég setji inn gagnrýni. Hún kemur á næstu dögum.Í tilefni þess að nú eru 10 dagar til jóla (og vondumyndakvöld!!!) set ég inn einn skemmtilegan hlekk. Smellið á myndina fyrir ofan til að komast á síðu sem hefur að geyma hvorki meira né minna en 101 jólavideo sem hægt er að horfa á í gegnum internetið. Vissulega misskemmtileg en margir gullmolar þarna sem pumpa upp jólaskapið.Dórakveðja, Jóli</description>
Breska þingið
      <description>Ég vildi að ég væri áskrifandi að stöð sem sýndi beint frá breska þinginu. Það er sko alvöru sjónvarpsefni. Af einhverjum ástæðum náum við Sky News án þess að vera með nokkra áskrift og þar er stundum sjónvarpað beint frá þinginu ef það er eitthvað sérstakt um að vera.Fyrirkomulagið á breska þinginu er ansi sérstakt og þegar meðlimir þess eru að rökræða hin ýmsu mál er ekki laust við að það fari að minna mann frekar mikið á einhvers konar battl þar sem menn skiptast á að stíga fram og skjóta á hinn aðilann, dyggilega studdur af sínu liði. Þeir sem sitja fyrir aftan eru duglegir að styðja sinn mann með alls kyns köllum og jafnframt láta þeir heyra í sér þegar þeim mislíkar það sem hinn segir. Maður bíður bara eftir því að einhver segi Y'all just mad. Because today, you suckers got served.Ég legg til að þetta fyrirkomulag verði tekið upp hérna, þá væri gaman að kíkja á áhorfendapalla Alþingis eða horfa á Alþingisrásina.    Hér má sjá The Battle of the Upper Class Twits</description>
Ekki stela þessari færslu!
      <description>  Rosalega er desember skemmtilegur mánuður! Ég geri ráð fyrir að allir séu að komast í óhemjuglæsilegt jólaskap, þökk sé jólamyndalistanum mínum. Búnir að útvega sér The Holiday fyrir kvöldið og baka piparkökur með. Er það ekki? Ég er allavega kominn í jólastuð eins og sést á nýju bloggútliti.Mér finnst rosalega skemmtilegt að eiga gott efni á DVD, hvort sem eru bíómyndir eða sjónvarpsþættir. Á sumum þeirra kemur þessi auglýsing sem er hér fyrir ofan í hvert skipti sem ég set diskinn í spilarann og get ég þá ekkert gert annað en að horfa á hana til enda áður en ég get byrjað að spila myndina/þættina. Það finnst mér ákaflega pirrandi. Mér finnst þetta frekar skondin leið til að koma skilaboðunum á framfæri, að bögga þá sem raunverulega keyptu sér efnið í stað þess að stela því á netinu. Fær mig eiginlega til að langa frekar til að sækja mér efnið á netinu...Nóg um það, ég er kominn með jólablönduna í ár. Maltbjór og appelsínubreezer! Einföld snilld, gamla góða jólablandan nema áfeng. Er hægt að biðja um eitthvað betra? Hef reyndar ekki smakkað en kem með stjörnugjöf þegar veður leyfir. Þið getið líka hent á mig kommenti ef þið ákveðið að malla svoleiðis blöndu, t.d. með slæmumyndakvöldinu á föstudaginn. Ef það er eitthvað sem bætir Santa Claus conquers the Martians þá er það áfengi. Held þó að allt áfengið í heiminum dugi ekki til að bæta Jingle All the Way. </description>
Lagið
      <description>Jæja, gaman að fá viðbrögð við jólabloggfærslunni. Annað hefði verið súrt miðað við hvað ég lagði í þessa færslu. Ætli ég hefði ekki neyðst til þess að hætta að blogga ef kommentin hefðu látið á sér standa.Merkilegt hversu mikil áhrif tónlist getur haft á mann. Stundum jafnast ekkert á við þá andlegu upplifun sem fylgir því að hlusta á ákveðið lag á réttum tíma. Það hljóta allir að kannast við það að eiga lög sem munu alltaf eiga sérstakan stað hjá viðkomandi fyrir það eitt að framkalla eitthvað alveg sérstakt, eitthvað óútskýranlegt.Það kemur einhverjum sjálfsagt á óvart að það lag sem nær að hreyfa hvað mest við mér er ekki með Tom Waits. Alveg frá því ég heyrði fyrst í laginu The Weeping Song, með Nick Cave and the Bad Seeds hefur það lag haft alveg spes tök á mér sem ég get með engu móti tiltekið nánar. Það er bara eitthvað við þetta lag sem dáleiðir mig, alveg sama hversu oft ég hlusta á það.Ég fann myndbandið á youtube og er búinn að missa töluna á hversu oft ég hef horft á það síðustu daga. Myndbandið er, eins og lagið sjálft, heillandi á afskaplega undarlegan hátt. Sjaldan hafa 2 menn getað verið jafn afkáralegir og furðulegir en samt yfirmáta svalir og heillandi.Án þess að ég vilji gera lítið úr þætti Nick Cave í þessu lagi þá er eitthvað við röddina í Blixa sem verður ekki leikið eftir.Njótið</description>
Jólafærsla
      <description>Jæja, held það sé kominn tími á jólabloggfærslu. Í tilefni þess að nú er mánuður til jóla ætla ég að koma með góða jólamyndapælingu.Athugið að ég er búinn að uppfæra þessa færslu verulega. Nú eru komnir youtube hlekkir við allar myndirnar. Einnig er hægt að smella á allar myndirnar í færslunni til að fá frekari upplýsingar. Njótið vel. Ég held ég hafi aldrei lagt jafnmikið í eina bloggfærslu.Hér er ég með uppskrift að góðum aðdraganda jóla, ein jólamynd á dag kemur jólaskapinu í jólalag.Einn, tveir og bingó!laugardagurinn 1. desemberHome AloneEkki slæm mynd að byrja á. Nostalgía fyrir alla sem sáu þessa mynd fyrir 17 árum. Macaulay Culkin heitasta barnastjarnan á svæðinu og ýktur leikurinn gerist ekki betri. Joe Pesci og Daniel Stern í fantaformi. Hvað varð annars um Daniel Stern?Söguþráðurinn ákaflega jólalega barnalegur og skemmtilegur.Tilvitnunin: Keep the change ya filthy animal!Youtube:Hryllingsmyndin Home Alone?Stutt útgáfa af myndinniKevin pantar pizzusunnudagurinn 2. desember (fyrsti í aðventu)Edward ScissorhandsÞessi er klassísk. Sumir eru kannski ekki sammála um að kalla þetta jólamynd en þetta er vissulega jólaleg mynd og mér finnst hún eiga fullt erindi hérna. Hún er líka bara svo falleg og skemmtileg og tilvalin til að koma manni í ákveðið  hátíðarskap. Tim Burton og Johnny Depp klikka svo sannarlega ekki.Tilvitnun: You see, before he came down here, it never snowed. And afterwards, it  did. If he weren't up there now... I don't think it would be snowing.  Sometimes you can still catch me dancing in it.Youtube:KvikmyndasýnishorniðJohnny Depp spjallar um EdwardSviðsuppsetning af myndinnimánudagurinn 3. desemberDie HardJóladínamítið mætt á svæðið. John McClane í hörkustuði í jólapartýi aldarinnar. Ekki síðri er Alan Rickman í hlutverki eins eftirminnilegasta illmennis á hvíta tjaldinu, Hans Gruber. Bara spenna, bara fjör og svo jólin þarna líka. Ein skotheld.Tilvitnun (myndin sjálf er ein tilvitnun frá byrjun til enda en ég valdi eina góða frá meistara Alan Rickman): I wanted this to be professional, efficient, adult, cooperative. Not a  lot to ask. Alas, your Mr. Takagi did not see it that way... so he  won't be joining us for the rest of his life. We can go any way you  want it. You can either walk out of here... or be carried out. But have  no illusions. We are in charge. So decide now, each of you. And please  remember: we have left nothing to chance.Youtube:SýnishorniðBallaðan um John McClaneHans Gruber (fyrir Silju)þriðjudagurinn 4. desemberDie Hard 2: Die HarderJohn McClane snýr aftur og aftur eru jól þegar hann lendir í miðjum hasar. Ekki jafngóð og fyrsta myndin í seríunni enda enginn Alan Rickman en þessi er samt fín jólahasarmynd. Þemað í þessari viku klárt; hasar.Tilvitnun: Yippie-kay-yay, motherfucker.Youtube:Yippie-kay-yay, motherfuckerBen Stiller í Die Hard 12: Die HungryGaur búinn að klippa sig inn í sýnishorn myndarinnarmiðvikudagurinn 5. desemberLethal WeaponHasarinn heldur áfram nema að þessu sinni er það tvíeykið Riggs og Murtaugh sem bjargar jólunum. Gary Busey á (sjaldséða) góða spretti sem illmennið Mr. Joshua en senunni er samt stolið af stórfenglegri sítt að aftan hárgreiðslu Mel Gibson.Tilvitnun: I'm too old for this shit!Youtube:Sýnishornið (80's alert!)Upphaflega opnunaratriðið sem átti að vera í myndinniJólaslagsmálinfimmtudagurinn 6. desemberHostile Hostages (aka The Ref)Ég man eftir þessari mynd sem Hostile Hostages en það er víst bara aukanafn þar sem opinbert nafn þessarar myndar er The Ref. Ef mig minnir rétt er hún samt á nafninu Hostile Hostages í leigum hér á landi. Denis Leary mættur á svæðið sem verulega pirraður (hvað annað?) þjófur sem rænir verulega pirrandi hjónum. Hjónin leikin af Judy Davis (sem getur verið verulega pirrandi) og Kevin Spacey (góður eins og ávallt). Skemmtilega pirrandi jólastemning.Tilvitnun: From now on, the only person who gets to yell is me. Why? Because I  have a gun. People with guns get to do whatever they want. Married  people without guns - for instance - you - DO NOT get to yell. Why? NO  GUNS! No guns, no yelling. See? Simple little equation.Youtube:Atriði úr myndinniAnnað atriði, skemmtilegt jólaborðhaldDenis Leary á þýskuföstudagurinn 7. desemberBad SantaHvað er jólalegra en Billy Bob Thornton sem drykkfeldur og geðvondur jólasveinn sem rænir verslanirnar sem hann vinnur í á jólanótt? Ekki margt. Algjör jólasnilld með góðum boðskap þarna undirliggjandi.Tilvitnun: I've been to prison once, I've been married - twice. I was once drafted  by Lyndon Johnson and had to live in shit-ass Mexico for 21/2 years for  no reason. I've had my eye socket punched in, a kidney taken out and I  got a bone-chip in my ankle that's never gonna heal. I've seen some  pretty shitty situations in my life, but nothing has ever sucked more  ass than this!Youtube:Sýnishornið úr myndinniStutta útgáfanSýnishornið með rússneskri þýðingulaugardagurinn 8. desemberMixed NutsSteve Martin í aðalhlutverki í þessari flippuðu jólamynd sem fjallar um fólk sem starfar eða tengist hjálparlínu, eins konar vinalínu. Juliette Lewis og Adam Sandler eru meðal þeirra sem leika kostulega karaktera í þessari frekar furðulegu sögu. Ber nafn með rentu en er þessi virði að kíkja á.Tilvitnun: Just remember that in every pothole there is hope. Well, you see,  pothole is spelled P-O-T-H-O-L-E. So if you take the P, and add it to  the H, the O, and the E, and rearrange the letters... or contrariwise,  you remove the O, T, and the L, you get "hope". So, just remember, in  every pothole there is hope!Youtube:Steve Martin spilar á banjóSteve Martin syngur með Johnny Cash og Kris Kristofferson í jólaþætti 1978Adam Sandler syngur Chanukah lagiðsunnudagurinn 9. desember (annar í aðventu)White ChristmasEftir allan hasarinn og geðveikina í vikunni er ágætt að taka smá gamaldags dans- og söngvamynd á sunnudegi. Þetta er mynd frá 1954 í tecnicolor skartar þeim Bing Crosby og Rosemary Clooney í stórum hlutverkum. Lögin eru eftir Irving Berlin og dansrútínurnar eftir Bob Fosse. Ást og söngur og dans og Bing Crosby og hvít jól, er hægt að biðja um eitthvað meira?Tilvitnun: When what's left of you gets around to what's left to be gotten, what's  left to be gotten won't be worth getting, whatever it is you've got  left.Youtube:White Christmas úr myndinniDansatriði úr myndinniMichael Bolton flytur White Christmas (hárið!!!)mánudagurinn 10. desemberBridget Jones's DiaryÁstin heldur áfram í þessari. Brilliant feel-good mynd svo maður noti nú gott slangur. Flott til að koma manni í jólagír.Tilvitnun: Resolution #1: uggg - will obviously lose 20 lbs. #2: always put last  night's panties in the laundry basket. Equally important: will find  nice sensible boyfriend and stop forming romantic attachments to any of  the following: alcoholics, workoholics, sexaholics, commitment-phobics,  peeping toms, megalomaniacs, emotional fuckwits, or perverts. Will  especially stop fantasizing about a particular person who embodies all  these things.Youtube:SýnishorniðAll by Myself úr myndinniAlvöru slagsmálaatriðiþriðjudagurinn 11. desemberThe HolidayRómantíska vikan heldur áfram með The Holiday. Bandarísk kona fer í frí til London á meðan bresk kona fer til L.A. Báðar konurnar hitta menn og ástin og allt það. Jólajólarómó to the max. Eru ekki jólin líka til þess að missa sig í rómantík?Tilvitnun: It's Christmas Eve and we are going to go celebrate being young and being aliveYoutube:SýnishorniðGagnrýni um myndina frá filmbuff83Jack Black í Lord of the Ringsmiðvikudagurinn 12. desemberThe Family ManEkta jóla-hvað-ef-mynd með Nicolas Cage í hlutverki harðsvíraðs bisnessmanns sem fær heimsókn frá jólaandanum Don Cheadle og fær að sjá hvernig lífið væri hefði hann valið fjölskylduleiðina. Allar jólaklisjurnar í bókinni en það er líka nákvæmlega það sem maður biður um.Tilvitnun: I'm sorry that I used to be such a saint back then, and I'm such a *prick* now!Youtube:SýnishorniðBrot úr myndinniÍtalskt flipp með myndinafimmtudagurinn 13. desemberTrapped in ParadiseSpaugþríeykið Nicolas Cage, Dana Carvey og Jon Lovitz leika 3 smákrimmabræður sem festast í litlum bæ yfir jólin og enginn getur giskað á framhaldið - eða þannig. Ein af þessum litlu jólaklisjum sem ylja manni eins og heitt súkkulaði með rjóma.Tilvitnun: This is your basic yoga, I learned it in prison. It's good for  stressful situations like this bank robbery, or if you're ever in  prison and you're surrounded by ten men, helps relax you.Youtube:Brot úr myndinniJapönsk auglýsing með Nicolas CageAmerísk auglýsing með Jon Lovitz og Dana Carveyföstudagurinn 14. desemberslæmumyndakvöld   Slæmar myndir geta verið góðar myndir og stundum er fátt skemmtilegra en að horfa á virkilega slæma mynd. Hérna koma 4 sem gætu verið skemmtilega lélegar.Fyrsta er Black Christmas, sem reyndar er til í 2 útgáfum. Fyrri er frá 1974 og svo er endurgerð frá 2006. Fjallar um raðmorðingja í jólaskapi sem slátrar stelpum í systrafélagi. Michael Myers í jólafríiNæst kemur Breakaway (aka Christmas Rush), Dean Cain er lögga sem tekur lögin í sínar hendur. Ef það er ekki nóg til að vekja áhuga þá leikur sjálfur Eric Roberts í myndinni.Þriðji valmöguleikinn er Jingle All the Way með hjartaknúsaranum og ríkisstjóravöðvatröllinu Arnold í aðalhlutverki. Fjallar um hinn sanna jólaanda, að kaupa besta jóladótið. Uppfull af frábærum grínistum eins og Sinbad og Jim Belushi. Reyndar vert að minnast á Phil Hartman, gæti verið gaman að sjá hann í öðru hlutverki en sem raddir snilldarkarakteranna Troy McClure og Lionel Hutz.Síðasti, og sannarlega sísti, möguleikinn  er  hörmungarepíkin  Santa Claus Conquers the Martians frá 1964. Ég held að titillinn segi allt sem segja þarf. Þetta er snilld á sama stalli og Plan 9 from outer space.Þetta ætti að gefa nokkuð góða valmöguleika fyrir slæmumyndakvöldið. Spurning hvort það sé nokkuð hægt að velja á milli þessara mynda.Tilvitnun: Ég trúi ekki að ég sé að horfa á þessa mynd!Youtube:Black Christmas upprunalega sýnishorniðHasaratriðabrot með sjálfum Dean Cain (eitthvað af því úr Breakaway)Jingle All the WiiKlassísk jólamyndasýnishorn, þar á meðal Santa Claus Conquers the Martianslaugardagurinn 15. desemberThe Chronicles of Narnia: The Lion, The Witch and the WardropeKlassískt ævintýri með mikilli skírskotun í jólin. Fátt betra á laugardegi en að missa sig í ævintýraheim í rúmlega 2 tíma. Myndin var að vísu dálítil vonbrigði komandi á eftir Lord of the Rings þríleiknum og stenst illa samanburð við t.d. Harry Potter myndirnar en þetta er klassísk saga þrátt fyrir það.Tilvitnun: If the Witch understood the true meaning of sacrifice, she would have  interpreted the deep magic differently. That when a willing victim who  has committed no wrong, offers himself in a traitor's stead, the stone  table will crack, and death itself will go backwards.Youtube:SýnishorniðLegóútgáfaMisheppnaðar tökur úr myndinnisunnudagurinn 16. desember (þriðji í aðventu)Miracle on 34th StreetVarúð - svart/hvít mynd! Þetta er jólaklassík. Skal ekki undir neinum kringumstæðum ruglast á þessari og endurgerð og ber að forðast endurgerðina eftir öllum ráðum. Upprunalega útgáfan er hins vegar jólamynd eins og þær gerast bestar. Persónulega finnst mér það að myndin sé svart/hvít gefa henni extra jólafíling. Sagan er líka falleg og boðskapurinn eins góður og þeir verða. Allir ættu að sjá þessa mynd!Tilvitnun: You see, Mrs. Walker, this is quite an opportunity for me. For the past  50 years or so I've been getting more and more worried about Christmas.  Seems we're all so busy trying to beat the other fellow in making  things go faster and look shinier and cost less that Christmas and I  are sort of getting lost in the shuffle.Youtube:SýnishorniðBrot úr myndinni, búið að lita filmunaGluggaútstilling í Macy's New York 2006 var byggð á myndinnimánudagurinn 17. desemberJack FrostSennilega enn ein dæmalausa klisjan en það er samt einhver vottur af frumleika í hugmyndinni um pabbann sem snýr aftur sem snjókall til að geta verið með syni sínum um jólin. Kannski er það bara jólaskapið sem fær mann til að halda í vonina.Tilvitnun: My balls are freezin! I never thought I'd say THAT with a smile on my face.Youtube:Brot úr myndinniRússneskt ævintýri með sama nafniBresk hryllingsmynd með sama nafniþriðjudagurinn 18. desemberThe Polar ExpressTeiknimynd sem lítur út eins og Coca Cola jólaauglýsing um töfralest sem ferðast á norðurpólinn. Hljómar eins og sleðabjöllur í mínum eyrum. Tom Hanks í aðalhlutverki.Tilvitnun: The thing about trains... it doesn't matter where they're going. What matters is deciding to get on.Youtube:SýnishorniðSýnishornið ef þetta væri spennumyndCoca Cola jólaauglýsingmiðvikudagurinn 19. desemberElfSkemmtileg ný sýn á jólasveinalífið þar sem Will Ferrell fer á kostum í hlutverki sínu sem maður alinn upp af álfum á verkstæði jólasveinsins. Heldur svo af stað í borgina að leita að alvöru pabba sínum. Góður jólaboðskapur fylgir að sjálfsögðu en myndin er bráðfyndin og hress.Tilvitnun: We elves try to stick to the four main food groups: candy, candy canes, candy corns and syrup.Youtube:SýnishorniðReiði álfurinnWill Ferrell í jólaauglýsingu frá Applefimmtudagurinn 20. desemberHow the Grinch Stole ChristmasSígilt Dr. Seuss ævintýri með Jim Carrey í hlutverki sem er sniðið fyrir hann sem Trölli sjálfur. Dáldið eins og commercialized Tim Burton nema skárra en það hljómar.Tilvitnun: The nerve of those Whos. Inviting me down there - and on such short  notice. Even if I wanted to go my schedule wouldn't allow it. Four  o'clock, wallow in self pity; 4:30, stare into the abyss; 5:00, solve  world hunger, tell no one. 5:30, jazzercize. 6:30, dinner with me. I  can't cancel that again. 7:00, wrestle with my self-loathing; I'm  booked. Of course, if I bump the loathing to 9 I could still be done in  time to lay in bed, stare at the ceiling and slip slowly into madness.  But what would I wear?Youtube:SýnishorniðYou're a Mean One, Mr. GrinchKlassískt grínatriði með Jim Carrey og Will Ferrellföstudagurinn 21. desemberLove ActuallyFrábærir leikarar, frábærir karakterar, frábær söguþráður, frábær jól, frábær mynd. Skylda að horfa á þessa fyrir hver einustu jól. Bara það að sjá Bill Nighy í þessari mynd syngja Christmas is all around me er tær snilld.Tilvitnun: Christmas is a time for people with someone they love in their lives.Youtube:SýnishorniðRowan Atkinson sýnir hvernig á að pakka inn jólagjöfViðtal við leikaralaugardagurinn 22. desemberThe Nightmare Before ChristmasÓjá! Tim Burton óskar öllum gleðilegra jóla á sinn eigin hátt. Jake Skellington í jólaskapi dauðans og sannarlega hægt að kalla þennan söguþráð jólaplott með tvisti. Tilvalið til að koma manni í dálítið öðruvísi jólaskap en einlægt jólaskap engu að síður.Tilvitnun: You know, I think this Christmas thing is not as tricky as it seems!  And why should they have all the fun? It should belong to anyone! Not  anyone, in fact, but me! Why, I could make a Christmas tree! And  there's not a reason I can find, I couldn't have a Christmas time! I  bet I could improve it, too! And that's exactly what I'll do!Youtube:SýnishorniðByrjunin á myndinniWhat's this sungið á japönskusunnudagurinn 23. desember (þorláksmessa og fjórði í aðventu)ScroogedJólaævintýri Dickens er nauðsynlegt fyrir jólin. Þetta er ein útgáfa af þeirri sögu en í rauninni gengur hvaða útgáfa sem er. Aðrar útgáfur eru t.d. The Muppet Christmas Carol, Christmas Carol: the Movie og endalausar fleiri útgáfur.Fyrir þá sem eru ekki hrifnir af þessu ævintýri má einnig benda á klassíkina  A Charlie Brown Christmas frá 1965.Tilvitnun: It's Christmas Eve. It's-it's the one night of the year when we all act  a little nicer, we-we-we smile a little easier, we-w-w-we-we-we cheer a  little more. For a couple of hours out of the whole year we are the  people that we always hoped we would be.Youtube:SýnishorniðA Blackadder Christmas CarolA Charlie Brown Christmasmánudagurinn 24. desember - aðfangadagurIt's a Wonderful LifeVarúð, svart/hvít mynd!Þetta er jólamynd jólamyndanna, svo einfalt er það. Frá 1946 og algjörlega sígilt meistaraverk. Til marks um það er hún í 31. sæti yfir topp 250 myndir inná imdb.com og það er verðskuldað. Hátíðarstemningin skrúfuð í botn í þessum einfalda hvað-ef söguþræði. Ef þessi kemur ykkur ekki í jólaskap þá getið þið bara hætt við jólin.Tilvitnun: Look, Daddy. Teacher says, every time a bell rings an angel gets his wings.Youtube:SýnishorniðÖðruvísi sýn á myndinaFlott atriði úr myndinniJæja, þá er það komið. Eflaust finnst einhverjum að myndir vanti sem ættu með réttu að vera þarna og sumum myndum hér að ofan ofaukið. Til þess er kommentakerfið. Væri líka heldur sorglegt að koma með þessa massabloggfærslu og fá engin viðbrögð.Ég ákvað samt, í virðingaskyni við Silju, að taka National Lampoon's Christmas Vacation ekki með. Silja hatar Chevy Chase eins og pestina. Það reyndist mér heldur ekki erfitt að virða þá ósk. Santa Clause myndirnar eru heldur ekki með en við Silja sameinumst þar í óþoli okkar á Tim Allen. Öðrum myndum gæti ég mögulega hafa gleymt af einhverjum ástæðum.Jólakveðja,Halldór</description>
Annoy-a-tron
      <description>Þetta er tjúttuð græja. Hægt að versla þetta á netinu (hvar annars staðar? fæst allt á þessu interneti) og kostar bara 10 dollara fyrir flutningsgjöld og tollaokur. Sennilega komið upp í 5000 kall eftir toll.En hvað gerir þessi magnaða græja? Júmm, hún er uppspretta mikillar gleði, sérstaklega á vinnustað. Þú einfaldlega felur þennan litla kubb á góðum stað og kveikir á. Eftir smá tíma byrjar hún að senda frá sér skemmtileg píphljóð. Það er hægt að velja mismunandi tíðnir eða láta græjuna velja tíðni í hvert skipti.Annoy-a-tron breytir einnig tímanum sem líður á milli pípa. Bara brilliant. Hversu pirrandi er að heyra píp sem maður áttar sig ekki á hvað veldur, hvaðan kemur eða hvenær það kemur? Sérstaklega í svona opnu rými eins og ég vinn í, þá væri þetta náttúrulega bara bjútifúl.Getið smellt á gripinn til að sjá meira og panta.Mig langar dáldið í þetta, finnst nafnið alveg sérstaklega skemmtilegt.Hversu fyndið væri líka að gefa svona í jólagjöf? Kveikja á þessu og pakka svo inn. Það fylgir batterí með og snilldin er náttúrulega að batteríið dugar í 3-4 vikur.</description>
Tjúttuð færsla
      <description>Ég er að hugsa um að taka upp nýjan sið. Bloggsið. Ég ætla að blogga oftar en á 3 mánaða fresti.Hvernig hljómar það?Annars vinn ég að því hörðum höndum að koma orðinu tjúttað inn í orðaforða landsmanna. Ég hef fulla trú á því að tjúttað geti orðið svalasta orð íslenskrar tungu fyrr og síðar. Eina sem ég á eftir að útfæra að fullu er merkingin. Ég hef þess vegna verið að máta orðið við hitt og þetta síðustu daga, Silju til mikillar skemmtunnar og alls ekki til nokkurs ama. Hún er bara frekar tjúttuð á því útaf þessu.Ég mæli því með að þið takið öll upp þetta orð í ykkar daglega máli. Sameinumst í átakinu Tjúttum upp heiminn 2007! Heimurinn þarfnast upptjúttunar.Megið líka endilega koma með tillögur að notkun. Annars hef ég ekki miklar áhyggjur af því þar sem merkingin mun ráðast af notkun og orðið mun finna sér sinn stað í tilverunni. Um það er ég sannfærður. Í dag er tjúttaður dagur.Talandi um tjúttað, langar að benda á þræltjúttaða þætti sem góðvinir mínir Arngrímur og Jón Örn hafa sent frá sér. Þá má nálgast hérna og bið ég alla um að koma dásemdinni á framfæri. Þetta er þátturinn sem heimurinn hefur beðið eftir. Allir sem eru orðnir leiðir á Agli Helga og hinir 2 líka skoði þessa þætti.Annars langar mig í svona bol, þetta er tjúttaður bolurSmellið á bolinn til að sjá hann í upphaflegu umhverfi og einnig ef þið viljið versla ykkur svona bol. Ég hugsa, vinnu minnar vegna, að ég verði að fá mér einn svona. Samt hata ég internetið og sérstaklega þráðlaus internetvandamál. Helvítis internetið. Nei, djók. Internetið er tjúttað.Kveðjur,Halldórp.s. ég veit að tímasetning þessa bloggs er grunsamleg en ég er ekki fullur, ég er að vinna (vúhú!).</description>
Frábærasta myndband í heimi
      <description>Halló!Fyrir alla þá fjölmörgu sem koma reglulega hingað inn og þyrstir í meira af mínu stórbrotna bloggi er ég hér með smá glaðning.Þetta er besta myndband í öllum heiminum. Allt við þetta er frábært, gaurinn sem lítur út eins og He-man, lagið, textinn, fötin sem þau eru í að ógleymdum danshópnum sem fylgir og sannarlega tímamóta dansrútínunni þeirra.Njótið vel</description>
Hæ aftur
      <description>Jájá, ég er alveg aktívasti bloggarinn.Langaði samt að deila þessu með ykkur.Þetta er cover af Tom Waits laginu Back in the good old world af Night on Earth.Hvað er annars að frétta?</description>
Komin frá London
      <description>Jæja, þetta var nú meiri ferðin. Algjörlega frábær ferð í alla staði verð ég að segja. Byrjum á aðalfréttunum, þegar við Silja komum heim frá London vorum við ekki lengur (og erum ekki lengur) kærustupar... heldur erum við núna trúlofuð!Lagið hér fyrir ofan er Flowers in the Window með hljómsveitinni Travis. Við fórum á Travis tónleika í London (í Hammersmith Apollo, leikhúsinu sem Tom Waits spilaði í síðast þegar hann var í London) sem eru bestu tónleikar sem ég hef farið á. Strákarnir í Travis kunna þetta alveg upp á hár og meira til.Myndbandið er tekið á tónleikum í Manchester viku fyrir tónleikana okkar en þeir tóku lagið á mjög svipaðan hátt á tónleikunum sem við fórum á. Þar sem þetta hefur lengi verið Travis-lagið okkar Silju (skoðið bara textann og hlustið á lagið) sá ég mér leik á borði í miðju lagi og bað Silju um að giftast mér. Auðvitað sagði hún já. Setti það meira að segja ekkert fyrir sig að þar sem ég var ekki búinn að plana þetta var ég ekki með neinn hring tilbúinn.Við tókum myndir og myndbönd í London, þau koma inn við fyrsta tækifæri.Við fengum alveg frábært veður, nánast allan tímann. Vorum búin að skoða veðurspár áður en við fórum út og miðað við það átti að vera rigning alla dagana nema einn en það rigndi nánast ekki neitt.Við gerðum ótrúlega margt á þessum 5 dögum; skoðuðum British Museum og Maddame Tussauds, fórum í Covent Garden og Camden Town, skoðuðum Oxford Street og Piccadilly Circus og margt margt fleira. Náðum engan veginn að klára allt sem okkur langaði að skoða en vitum bara hvað við gerum næst þegar við komum til London.</description>
Mikið hlakka ég til
      <description>Ég get ekki beðið eftir þriðjudagskvöldinu, þá verður sko fjör...</description>